VK2021
92 Urriðinn dansar þrátt fyrir Covid Þrátt fyrir að ekki hafi verið hægt að sækja skipulagðan urriðadans í boði Jóhannesar Sturlaugssonar hjá Laxfiskum líkt og undanfarna tvo áratugi, þá létu urriðaaðdáendur það ekki á sig fá og fjölmenntu við Öxará til að bera risavaxna urriðahöfðingja augum. Sjaldan hafa jafn margir urriða verið sýnilegir í ánni og mátti sjá rígvæna hænga berjast um hrygnurnar. Októbermánuður var afar veðurmildur og því var jafnan fjöldi manns í göngutúrum um þjóðgarðinn til að njóta haustlitanna og urriðans við kjöraðstæður. Myndir: María Gunnarsdóttir
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=