VK2021

90 veidikortid.is Staðsetning: Vífilsstaðavatn er í Garðabæ, rétt austan við Vífilsstaði. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er í 38 m hæð yfir sjávarmáli og mælist um 0,27 km 2 að flatarmáli. Það er mjög vinsælt meðal veiðimanna og þykir mörgum ómissandi að fara þangað á vorin til að fá fyrstu tökur ársins, en einnig til að fara yfir veiðibúnaðinn fyrir sumarið. Þess má geta, að Vífilsstaðavatn er tilvalið til að æfa fluguköst. Veiðisvæðið: Heimilt er að veiða í öllu vatninu nema merktu bannsvæði (sjá kort). Gott er að veiða sunnanmegin í vatninu og undir hlíðinni að norðaustanverðu. Gisting: Ekki er heimilt að tjalda við vatnið. Veiði: Í vatninu fæst einkum urriði og bleikja. Mest er um smábleikju, en einnig veiðist stærri fiskur, 1-2 pund. Fiskurinn úr vatninu er mjög góður matfiskur. Tímabil: Veiðitímabilið er frá 1. apríl til 15. september. Hægt er að sækja um leyfi til dorgveiða á ís. Þá kostar dagsveiðileyfi 1.000 kr. og skulu þau greidd í Þjónustuveri bæjarskrifstofu að Garðatorgi 7 við Vífilsstaðaveg. Agn: Aðeins má nota flugu, maðk eða spón. Öll önnur beita og smurefni stranglega bönnuð. Besti veiðitíminn: Jafnan veiðist best á vorin, í maí og júní. Reglur: Vífilsstaðavatn var friðlýst þann 2. nóvember 2007. Vatnið er í eigu og umsjón Garðabæjar og nýtur ákvæða laga um friðlýsingar sbr. lög um náttúruvernd nr. 60/2013. Veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og fylgja leiðbeiningum á skiltum friðlandsins. Hundar skulu vera í bandi, en um varptímann 15. apríl til 1. júlí ríkir algjört hundabann í friðlandinu. Notkun vélbáta og kajaka óheimil. Veiðimenn þurfa ekki að skrá sig áður en þeir halda til veiða en hafa Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður óskar eftir því. Passið upp á girni og króka! Veiðivörður: Linda Björk Jóhannsdóttir, S: 820- 8574. Fréttir af veiði og aflatölur eru vel þegnar til umsjónarmanns á netfangið lindajo@gardabaer.is . Vífilsstaðavatn 1. apríl - 15. sept 8:00 - 24:00 Vinsamlegast virðið veiðibann við norðurenda vatnsins vegna verndunar Flórgoðans. VEIÐI BANN 64° 4,749’N, 21° 52,324’W

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=