VK2021

80 veidikortid.is Staðsetning: Sænautavatn er á Jökuldalsheiði, við Sænautasel. Leiðarlýsing: Vatnið er um 600 km frá Reykjavík, 74 km frá Egilsstöðum 13 km, frá þjóðvegi 1. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er með djúpan skurð í miðju, dýpst 24 m. Úr vatninu rennur Lónskvísl, sem fellur í Hofsá í Vopnafirði. Veiðisvæðið: Veiði er heimil í öllu vatninu. Gisting: Korthafar geta keypt aðgang að tjaldstæði eða gistingu í gamla bænum að Sænautaseli. Einnig er hægt er að kaupa gistingu á Skjöldólfsstöðum (um 20 km) eða á Aðalbóli sem er efsti bærinn í Hrafnkelsdal. Veiði: Bleikju er að finna í vatninu, bæði smáa og stóra fiska. Það grynnkar mjög til jaðranna og veiðist oft vel þar sem grynning og dýpi mætast. Um lágnættið er oft sérstaklega farsæl veiði. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn : Jöfn veiði er yfir veiðitímann, þó yfirleitt betri á vorin og haustin. Annað: Hægt er að kaupa veitingar á Sænautaseli, t.d. kaffi og lummur. Með fyrirvara er hægt að fá mat keyptan. Hægt er að leigja sjókæjak á staðnum. Reglur: Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Korthafar skulu skrá sig í Sænautaseli og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðivörður: Lilja Óladóttir, Sænautaseli, GSM: 892-8956 eða 853-6491. Sænautavatn 1. maí - 20. sept 24/7 65° 15,856’N, 15° 31,142’W Langholtsvegi 111 REYKJAVÍK 600 KM EGILSSTAÐIR 13 KM

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=